Sýnendur
Bóka bás
SUMAR EXPO 2027 býður sýnendum bása í Fífunni dagana 7. – 9. maí 2027. Hér finnur þú yfirlit yfir verð og helstu upplýsingar. Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Sýningarrými án kerfis
Básaverð er 24.900 kr. á fermetra og 7.200 kr. á fermetra á útisvæði. Lágmarksstærð á sýningarrými er 9 fm. Við bókun á sýningarrými gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Sýningarkerfi
Sýnendur á SUMAR EXPO hafa frjálst val um að koma með eigið kerfi eða nýta þjónustu sýningarfyrirtækis. SUMAR EXPO er í samstarfi við Merkingu, sem hefur áratuga reynslu af stórsýningum og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu þegar kemur að því að hanna og setja upp bása. Sjá nánar undir Þjónustuaðilar.
Merking býður upp á sérstakt tilboð á sýningarkerfum, hönnun og merkingum fyrir sýnendur SUMAR EXPO 2027. Innifalið í tilboðinu er: steingráar teppaflísar, uppsettir kerfisveggir og uppsetning kappa / facia board, ásamt nafni sýnanda á kappa og þremur ljósum. Verð: 9.990 kr. á fermetra.
Fyrir nánari upplýsingar og útfærslur, hafið samband við Hjördísi:
Sími: 620 0017 / 556 9000 · Netfang: syningar@merking.is
Fastagjald
Fastagjald er 49.000 kr. á sýnanda. Innifalið í fastagjaldi er öryggisgæsla, þrif á göngum, almennum rýmum í sýningarsal og anddyri, sorphirða almenns sorps, rafmagnsnotkun vegna lýsingar, eldvarnir og þráðlaust net.
Rafmagnsnotkun
Rafmagnsnotkun er innifalin í fastagjaldi, en rafmagnstenglar eru ekki innifaldir. Sýnandi þarf að panta tengla og aukalýsingu hjá viðkomandi þjónustuaðila — sjá nánar undir Þjónustuaðilar.
Öll verð eru án virðisaukaskatts.
Umsókn um bás
Fylltu út eyðublaðið og við höfum samband. Reitir merktir með * eru nauðsynlegir.