Sýningin
Um sýninguna
Sýningin verður haldin dagana 7. – 9. maí 2027 í Fífunni, Kópavogi.
Stórsýningin SUMAR EXPO 2027 er fyrir alla þá sem vilja njóta afþreyingar, fræðast og kynna sér nýjungar og framboð á öllu því sem tengist sumarhúsinu, garðinum, útivist, ferðalögum og heimilinu.
Gestir geta notið veitinga sem boðið verður upp á á sýningunni á milli þess sem þeir skoða sölu- og kynningaraðila. Boðið verður upp á fría barnagæslu svo að allir meðlimir fjölskyldunnar geta notið sín.
Sumarsýningar voru haldnar á árunum 2002 til 2008 við mikla vinsældir gesta og sýnenda. Miklar framfarir hafa orðið síðan á sumartengdum vörum og afþreyingu, og því ljóst að SUMAR EXPO verður kjörið tækifæri til að kynna sér allar helstu nýjungar og þá þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár — og koma sér í sannkallað sumarskap.
SUMAR EXPO sækir innblástur í fyrri sumar-, garð- og útivistarsýningar sem haldnar voru hér á landi um árabil, meðal annars sýningar á borð við Sumarhúsið og Garðinn. Þær sýningar nutu mikilla vinsælda og voru mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki til að kynna vörur og þjónustu sem tengdust sumarbústöðum, garðinum, útivist, ferðalögum og íslensku sumri.
Á sínum tíma drógu slíkar sýningar að sér fjölbreyttan hóp gesta — fjölskyldur, húseigendur, sumarhúsaeigendur, útivistarfólk, sælkera og fólk í framkvæmdahug. Þar gátu gestir fengið hugmyndir, borið saman lausnir og hitt þjónustuaðila á einum stað.
Með SUMAR EXPO er markmiðið að endurvekja þessa hefð í nútímalegri og ferskari mynd — með breiðari áherslu á allt sem tengist sumrinu, útiveru, heimilinu, garðinum, ferðalögum, afþreyingu og lífsstíl.