Fyrrum sýningarstjórar Sumarhúsið og Garðurinn taka þátt á Sumar Expo
Einn af fyrstu básum á Sumar EXPO verður hjá Auði Ottesen og nýjasta verkefni hennar, Auður allt árið. Auður stóð að sýningunum Sumarhúsið og Garðurinn á árunum 2002 til 2008.

Það er okkur sönn ánægja og mikill heiður að tilkynna að einn af fyrstu básum á Sumar EXPO verður hjá Auði Ottesen og nýjasta verkefni hennar Auður allt árið. Auður Ottesen og eiginmaður hennar Páll Jökull Pétursson stóðu að sýningum Sumarhúsið og Garðurinn sem haldnar voru á árunum 2002 til 2008. Sumar EXPO byggir á grunni þeirra sýninga sem Auður stóð svo myndarlega að og því er fagnaðarefni að tilkynna komu þeirra á Sumar EXPO. Auður hefur kennt vinsæl garðyrkjunámskeið frá árinu 2009 og er þekkt fyrir að deila frumlegum og hagnýtum ræktunarhugmyndum í íslenska fjölmiðla. Í dag heldur hún því starfi áfram á fésbókarsíðinni og á Instagram Auður allt árið og á heimasíðunni audur.garden sem er bæði á íslensku og ensku. Auður gefur jafnframt út nýtt efni og kennir námskeið sem hjálpa fólki að rækta sitt eigið grænmeti og fegra nærumhverfi sitt.