Kópavogsbær og Sumar Expo undirrita samning
Kópavogsbær og Sumar Expo hafa undirritað samning um afnot af Fífunni fyrir sýninguna 7.–9. maí 2027.

Kópavogsbær og Sumar Expo hafa undirritað með sér samning um afnot af Fífunni fyrir komandi sýningu, dagana 7.–9. maí 2027. Fífan hefur um árabil hýst margar af stærstu sýningum landsins og ljóst er að Sumar Expo mun skipa sér í hóp stærstu sýninga sem haldnar hafa verið hérlendis. Mikil reynsla er hjá starfsfólki Fífunnar sem mun tryggja fyrsta flokks upplifun bæði hjá gestum og sýnendum. Aðstaðan sem Fífan hefur upp á að bjóða hentar einkar vel fyrir sýningar að þessari stærðargráðu þar sem rýmið er mikið og næg bílastæði í boði fyrir vel sóttan atburð á borð við Sumar Expo. Samstarfið markar mikilvægt skref í skipulagningu Sumar Expo. Tekin var mynd að tilefni undirritunar samnings milli Kópavogsbæjar og Sumar Expo. Til hægri er Gunnar Guðmundsson deildarstjóri íþróttadeildar Kópavogsbæjar, til vinstri er Magnús Þór Gunnarsson sölu- og markaðsstjóri Sumar Expo.