Hoppa beint í aðalefni
SUMAR EXPO
← Allar fréttir

Pepsi og Gull áfengislaus nýir bakhjarlar Sumar EXPO 2027

Pepsi og Gull áfengislaus eru nú styrktaraðilar Sumar EXPO 2027. Með öflugum bakhjörlum eykst geta sýningarinnar til að vaxa, þróast og bjóða upp á enn fjölbreyttari dagskrá.

Vörumerki Pepsi og Gull áfengislaus, bakhjarla Sumar EXPO 2027.

Metnaður Sumar EXPO er að leiða saman gesti, sem vilja fá sem mest út úr íslensku sumri, til sýnenda sem bjóða upp á vöru og þjónustu sem stuðlar að sumarupplifun á einn eða annan hátt. Pepsi og Gull áfengislaus eru nú styrktaraðilar Sumar EXPO 2027 en með þessum samningi styrkist uppbygging og framkvæmd sýningarinnar. Með öflugum bakhjörlum eykst geta sýningarinnar til að vaxa, þróast og bjóða upp á enn fjölbreyttari dagskrá. Á næstu vikum verða kynntir fleiri bakhjarlar, sýnendur og dagskrárliðir. Markmiðið er að tryggja að gestir fái sem mest út úr heimsókn sinni og að Sumar EXPO 2027 verði upphafspunktur sumarsins.